Sunday, September 25, 2005
já klukk klukk....
ég er þunn núna!
herbergið mitt er í rúst!
kisan mín er sætasta kisa í heimi!
ég safna dvd!
langar að eignast kærasta!
búin að klukka nokkra á einhleypar blogginu... svo að get ekki klukkað fleiri..
Posted at 09:38 am by sigurlaug
Myndir frá helginni komnar inn, Helga átti afmæli á föstudaginn og hélt partý á Laugardeginum, svaka stuð og mikið drukkið, fórum á ýmsa staði en enduðum í svaka fjöri á oliver mjög gaman... endilega skoða myndirnar :)
Posted at 09:21 am by sigurlaug
Thursday, September 15, 2005
Já hérna í gamla daga hefði maður verið að fara á fyllerí í kvöld, eitthvert bjórkvöldið hehe sit og er að bíða eftir að kartöflurnar verði meirar, veit samt eiginlega ekki hvað það þýðir en skil það sem tilbúnar! er að elda kartöflu og gulrótarbuff, maður er að vera healthy svona með haustinu:)
annars erum við í skólanum að gera leikrit og dúddi sko, bara flash back til grunnskólans, gera handrit, finna leikmuni, raða í hlutverk og fleira stuð, ég leik pabbann! erum að gera H.C Andersen ævintýri um Prinsessuna og Svínahirðirinn en í nútímabúning, þ.e prinsessan er Silvía Nótt og prinsinn Gísli Marteinn, tekst vonandi að skila því í leikritinu sem við sýnum á mánudag!! Og já engum boðið!!:)
gaman saman sigurlaug
Posted at 10:49 am by sigurlaug
Tuesday, September 13, 2005
já maður er bara kominn snemma heim, einn tími í dag:) mæta 10:20 og koma heim 12:00!!:) en þarf nú auðvitað að læra, svo að þetta er ekkert frí. Held að ég þurfi að fara í meðferð fyrir fólk sem hangir á netinu í lengri tíma án þess að vera að gera neitt merkó! er einhver með??
er búin að skella inn þessum örfáu myndum sem teknar voru í bústaðnum, skrýtið hvað maður tekur stundum fáar myndir en stundum of margar! allavega
hérna eru þær
Posted at 05:53 am by sigurlaug
Monday, September 12, 2005
enn og aftur að reyna... :)
Jæja held að ég geri nú lokatilraun á að halda þessu bloggi á lífi, ef það gengur ekki núna þá gefst ég upp:)
helgin var góð djamm með
kennó rosa stuð hjá okkur Nínu.... fórum með rútu uppí úthlíð og djömmuðum þar til svona ellefu þá tókum við rútuna heim, enda fullar og blautar vegna mikillar rigningar!!! :) svo var bara vaknað snemma og farið að taka sig til fyrir bústaðarferð, það var voða gaman, ég, Nína, Guðrún, Sibba, Auður, Rúna og Ármann, við elduðum girnilegan kjúlla með öllu og spiluðum og sötruðum bjór...
æðisleg helgi og mætt í skólann núna á fyrirlestri um mál og ritþjálfun, hmm allir á netinu bara!
Kveðja
Sigurlaug
Posted at 05:14 am by sigurlaug
Thursday, June 09, 2005
VAR AÐ FATTA AÐ ÞAÐ ERU 84 DAGAR Í AÐ 1 SEPTEMBER KEMUR, SEM ÞÝÐIR AÐ EKKI ER SUMARIÐ LANGT OG EKKERT PLAN ER UM SUMARIÐ HJÁ OKKUR GELLUNUM!! EKKI SÁTT.......
EN JÆJA ER AÐ FARA TIL SPÁNAR SAMT MEÐ FAMILÍUNNI Í 2 VIKUR, ÞAÐ VERÐUR FÍNT! ALLT SUMARFRÍIÐ Í LEIKSKÓLANUM FER REYNDAR Í ÞAÐ EN MAÐUR ER HVORT SEM ER Á LEIÐ Í SKÓLA Í HAUST SVO ÞAÐ SKIPTIR LITLU..... VONA AÐ MAÐUR KOMIST INN, ÉG TALA ALLTAF EINS OG ÉG KOMIST BARA BEINT INN :)
EN ÉG ER KOMIN MEÐ NÝTT MYNDARALBÚM Á NETINU... OG ÞAÐ ER SIGURLAUG.MYPHOTOALBUM.COM
Posted at 07:32 am by sigurlaug
Tuesday, May 10, 2005
já bara kominn maí og ég flutt heim á Rauðalæk aftur..... ekkert kozy laugarnesvegur lengur, ekki mjög gaman að því, komin í eitt herbergi hér, maður var orðinn svo góður vanur :) en þetta venst örrugglega, maður náttla á bíl svo maður getur verið frjáls ferða sinna hehe.... en já skrýtið hvað maður er orðinn pirraður í vinnunni núna, tel bara dagana í frí og næstu helgi! Þótt það sé vinnuhelgi..... og Dúdda bara að fara til Grikklands, massa stuð hjá henni:)
Posted at 04:13 pm by sigurlaug
Sunday, March 27, 2005
Súkkulaði dagur í dag..... og einmitt þá langar mig ekkert svo í, það er alltaf þannig.... þegar maður má þá langar manni ekki og þegar maður vill eitthvað fær maður það ekki, um að gera að hafa allt temmilega flókið.....
er fólk að fara að djamma í kvöld, Helga er alveg æst í djammið veit ekki hvað hefur komið yfir hana ;) hehe góð helga, ég fer í mesta lagi þá með Harald með mér! :)
Posted at 06:02 am by sigurlaug
Saturday, March 26, 2005
sælt veri fólkið ákvað að skella hér inn nokkrum línum.... soddan pressa á mann að skrifa eitthvað :) Páskar og takmarkið átti að vera að djamma ekkert það féll nú bara strax á miðvikudeginum iss lélegt enginn sjálfsagi í gangi! en það var gaman og svo aftur á föstudag líka gaman, þá var afmæli hjá Systu og við mættum allar í mat og alles, drukkum þar og fórum svo í bæinn að vanda...... Myndir komnar inn frá föstudeginum... tók engar myndir á miðvikudeginu frekar svekkt yfir því sáum Davíð Smára og alles og hittum fullt að hressu fólki meðal annars stelpurnar frá lúxemborg frá þeim langa og góða tíma hmmmmm............
Skellti líka með mynd af Haraldi sérstakelga fyrir þig Sibba mín, hann er inní myndamöppunni og síðasta mappan seinasta mynd.... er hann ekki flottur???
Posted at 10:03 am by sigurlaug
Tuesday, March 08, 2005
Myndirnar segja allt sem er að gerast ekkert merkilegt til að skrifa um!
klikka hér! sé svo til hvað verður seinna blogg eða ekki blogg... njótið myndanna þær nýjustu eru í meira djamm febrúar og áfram..... :)
Posted at 10:08 am by sigurlaug